Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Tölvuleikir»Fréttir»Íslenskt leikjafyrirtæki þróar nýjan söngleikjastefnumótaleik
    Fréttir

    Íslenskt leikjafyrirtæki þróar nýjan söngleikjastefnumótaleik

    Höf. Bjarki Þór Jónsson14. febrúar 2026Uppfært:25. febrúar 2026Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Replay! the Musical er rytmískur söngleikjastefnumótahermir sem er væntanlegur frá Deadgroove Games, nýju íslensku leikjafyrirtæki sem var stofnað í janúar á þessu ári. Tónlistarmaðurinn Viktor Ingi Guðmundsson er skráður sem stjórnarformaður Deadgroove Games og jafnframt leikjastjóri (game director) Replay! the Musical. Viktor starfar einnig sem hljóðstjóri (director of audio) hjá Myrkur Games og samdi meðal annars tónlistina fyrir Echoes of the End.

    Og þegar tilfinningarnar eru orðnar of stórar brestur leikurinn út í söng.

    Viktor Ingi Guðmundsson, leikjastóri hjá Deadgroove Games

    Í gær birti fyrirtækið sitt fyrsta myndband þar sem leikurinn er kynntur í stuttu máli. Þar kemur fram að Replay! the Musical muni bjóða upp á söngleikjaupplifun í söngleikja- og rytmísku leikjaformi þar sem leikmenn fara með aðalhlutverkið. Leikmönnum gefst tækifæri á að kynnast fólkinu í smábænum Seahaven og skapa tengsl við bæjarbúa. „Og þegar tilfinningarnar eru orðnar of stórar brestur leikurinn út í söng.“ segir Viktor Ingi í kynningarmyndbandinu. Sýnt er stutt brot úr spilun leiksins þar sem blandað er saman einkennum sjónrænna skáldsagna (e. visual novels) og rytmískra leikja þar sem leikmaður þarf að ýta á ákveðna takka á réttum tíma til að safna svokölluðum hugrekkisstigum. Þau stig eru svo notuð til að heilla bæjarbúa Seahaven.

    Íbúar smábæjarins Seahaven // Skjáskot úr YouTube myndbandi

    Átta manna teymi sem hefur reynslu úr tölvuleikja- og tónlistarheiminum vinnur um þessari mundir að gerð sýnisútgáfu (demo) leiksins í samvinnu við leikara og söngvara. Hægt er að fylgja Deadgroove Games á samfélagsmiðlum en engin heimasíða tileinkuð leiknum hefur verið formlega kynnt. Deadgroove Games er á YouTube, Instagram, Facebook og TikTok.

    Uppfært 25. febrúar: Upphaflega var sagt að Viktor starfði áður sem hljóðstjóri hjá Myrkur Games en hið rétta er að hann starfar enn sem hljóðstjóri  hjá Myrkur Games. Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum.

    Mynd: Deadgroove Games (YouTube)

    Deadgroove Games igi Replay the Musical rytmískur leikur söngleikur stefnumótaleikur Viktor Ingi Guðmundsson visual novel
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaLeikjalisti dj flugvélar og geimskips
    Næsta færsla Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale
    Bjarki Þór Jónsson

    Svipaðar færslur

    Leikjavarpið #69 – Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia

    26. mars 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026

    Nature Meets Play – ráðstefna um gerð námsleikja 17. mars í HR

    17. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins

    Leikjavarpið #69 – Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia

    26. mars 2026
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026

    Nature Meets Play – ráðstefna um gerð námsleikja 17. mars í HR

    17. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026
    Leikjarýni
    8.5

    Nioh 3 – „Gott verður betra“

    24. mars 2026
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Leikjavarpið #69 – Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia
    • Nioh 3 – „Gott verður betra“
    • Nature Meets Play – ráðstefna um gerð námsleikja 17. mars í HR
    • Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    • Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.