Í gær tilkynnti Halldór S. Kristjánsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi íslenska leikjafyrirtækisins Myrkur Games, að leikurinn þeirra Echoes of the End mun bætast við PlayStation Plus katalóginn. Það þýðir að allir PlayStation Plus Extra og PlayStation Plus Premium áskrifendur geta nú sótt og spilað Echoes of the End án aukakostnaðar. Halldór telur þetta vera gæfuspor þar sem aðgangur að leiknum opnist fyrir milljónum spilara.
Samhliða þessu er minniháttar uppfærsla væntanleg fyrir leikinn þann 19. febrúar næstkomandi sem mun innihalda ljósmyndamöguleika (Photo Mode) og nýjan klæðnað með Valentínusarþema handa Ryn og Abram. Halldór staðfestir að leikurinn verði viðhaldið áfram og fái fleiri minniháttar uppfærslur á árinu 2026.
