GeimDýragarðurinn er tölvuleikur sem er þróaður af Steinunni Eldflaug Harðardóttur (dj flugvél og geimskip) og Jon Arthur Marrable. Í leiknum heimsækir spilarinn súrealískan og skynörvandi heim sem er fullur af lífi, litum og gleði þar sem markmiðið er að finna hljóðbúta úr lögum Steinunnar.
Leikurinn var fyrst gerður aðgengilegur á itch.io árið 2022 en síðan þá hafa villur verið lagfærðar og leikurinn telst nú vera fullkláraður. Til að fagna þeim áfanga var hægt að spila GeimDýragarðinn á Myrkum músíkdögum þann 30. janúar síðastlinn í Hörpu en auk þess er hægt að nálgast leikinn ókeypis á heimasíðu Dj flugvél og geimskip og hér á itch.io.
