Fréttir

Birt þann 29. júní, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

Íslandsmeistaramót í Dominion 1. júlí

Mánudaginn 1. júlí 2013 munu Spilavinir halda íslandsmeistaramót í borðspilinu Dominion. Sigurvegari mótsins mun öðlast þáttökurétt á heimsmeistaramóti Dominion sem verður haldið í Bandaríkjunum í ágúst. Til þess að taka þátt þurfa þátttakenndur að melda sig hér á Facebook eða senda Spilavinum tölvupóst á netfangið spilavinir@spilavinir.is. Nánari upplýsingar um mótið má finna hér á Facebook:

Fyrir þá sem ekki þekkja er Dominion skemmtilegt og krefjandi borðspil sem byggir á spilastokkum. Hver leikmaður byrjar með 10 spil en smátt og smátt kaupa leikmenn spil inn í stokkinn til að stækka og bæta sitt „konungsveldi“. Einn leikur af Dominion tekur bara um 30 mínútur og hver leikur er mismunandi.

 

Á mótinu verða spilaðar þrjár umferðir af þriggja og fjögura manna leikjum. Þeir sem koma stigahæstir úr þeim umferðum spila undanúrslita- og úrslita leiki upp á efstu sætin.

 

Auk verðlauna vinnur sigurvegarinn sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramóti Dominion sem verður á GenCon í Indiana í Bandaríkjunum 15. – 18. ágúst!

 

Allir sem kunna Dominion eru velkomnir og kvöldið verður skemmtlegt og spennandi.

-BÞJ
Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑