Birt þann 20. september, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Gamestöðin heldur Íslandsmeistaramót í FIFA Unplugged
Undanfarin ár hefur Gamestöðin haldið hefðbundin FIFA mót í tengslum við útgáfu FIFA fótboltaleikjanna. Gamestöðin hefur ákveðið að breyta til að þessu sinni og mun halda Íslandsmeistarmót í svokölluðu FIFA Unplugged.
Í FIFA Unplugged mótinu verður keppt í fótboltaspili (foosball) og verður keppt í tveimur flokkum; einstaklingskeppni og tvímenningskeppni. Mótið verður haldið í Gamestöðinni Kringlunni og hefst kl. 17:00 og stendur til 21:00 miðvikudaginn 26. september.
Skráning fer fram í Gamestöðinni Kringlunni og er fjöldi vinninga í boði. Tekið skal fram að einungis þeir sem hafa forpantað leikinn geta skráð sig í mótið.
– BÞJ