Bíó og TV
Birt þann 26. janúar, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins
0GameTíví heldur áfram eftir hlé
Vinsælasti tölvuleikjaþáttur landsins heldur göngu sinni áfram eftir eins og hálfs mánaðar vetrarfrí. Fyrsti GameTíví þáttur ársins verður sýndur í kvöld, fimmtudaginn 26. janúar, kl. 18:50 og verður í opinni dagskrá á Skjá Einum.
Í þáttunum fjalla þeir GameTíví bræður, Ólafur Þór og Sverrir Bergmann um nýjustu leikina að hverju sinni, væntanlega leiki ásamt því að slá á létta strengi af og til með áskorunum, keppnum og getraunum.
Mynd: GameTíví á Facebook
– BÞJ