Birt þann 1. desember, 2014 | Höfundur: Nörd Norðursins
Leikjarýni: Lego Batman 3: Beyond Gotham
Samantekt: Þetta er ekki slæmur leikur og það er nóg að gera og safna.
3
Steinar Logi skrifar:
Lego Batman 3: Beyond Gotham er nýjasti Lego leikurinn byggður á þekktu vörumerki. Fyrstur var Lego: Star Wars sem kom út 2005 og síðan þá hafa leikirnir komið út ár eftir ár með lítilsháttar breytingum á formúlunni. Undanfarið hafa þó margir leikirnir verið með opinn heim þar sem hægt er að flækjast um og leysa minni háttar verkefni sb. Marvel Super Heroes.
Þar sem undirritaður er „aðeins“ eldri en markhópurinn þá voru 8 ára sonurinn og vinir hans fengnir til að spila hann einnig. Þetta ár höfum við spilað Lego Marvel Super Heroes (toppeinkunn) og Lego Pirates of the Caribbean (fengum fljótt leið á). Það skiptir miklu máli hvort maður hafi gaman af vörumerkinu þegar kemur að Lego leikjum; enginn okkar var Pirates aðdáandi og því drepleiddist okkur á köflum. Þá reynir of mikið á spilunina sjálfa sem getur orðið frekar einhæf og óskemmtileg í Lego leikjum. Það að barnið geti sett sig í spor hetjunnar sinnar virkjar ímyndunaraflið og allt er miklu skemmtilegra.
Batman 3 féll í þennan hóp yfir okkur. Það er fullt af karakterum og ekki bara það heldur er líka fullt af búningum sem hver karakter hefur. Reyndar finnst manni stundum of mikið um. Batman getur t.d. sprengt hluti, svifið um á „jetpack“, notað röntgensjón o.s.frv. Sagan sjálf er frekar stutt og í raun aukaatriði, þessi leikur snýst um að safna karakterum, opna fyrir nýja hluti og ná bónusum. Þetta er nokkurs konar Batman Pokemon og því er þetta endingargóður leikur.
Fyrri hluti sögunnar er frekar pirrandi, við lentum iðulega í því að það vantar talsvert af stöðum til að vista leikinn. Þetta er einstaklega slæmt fyrir foreldra þegar það er allt upp í klukkutími milli staða sem hægt er að vista því að krakkarnir eru að leysa einhverjar þrautir sem þeir finna ekki útúr strax. Dæmi:
„Jæja, nú áttu að slökkva“
„En pabbi, ég á eftir að save-a!“
10 mínútur líða.
„Jæja, nú þarf að slökkva“
„Æi, pabbi, ég finn ekki savepunkt!“
Tölvunördapabbinn fer á netið, finnur „walkthrough“, næsta hluta náð. En það kemur ekki „checkpoint“ og það er heldur enginn staður til að vista þar. Tími búinn, slökkt á tölvunni, allir pirraðir. Þetta batnar samt í seinni hluta leiksins og hugsanlega þegar maður lærir á öll trikkin (t.d. maður þarf að skemma allt til að sjá hvort það sé hægt að endurbyggja eitthvað tæki úr rústunum).
Söguþráðurinn er ekkert til að hrópa húrra yfir og í grundvallaratriðum er hann ekki það ólíkur söguþræðinum í Marvel Super Heroes. Hetjurnar okkar eru ekki eins svalar og við sem erum eldri höfum vanist; Robin er vælukjói, Wonder Woman er sípirruð og Superman er aðeins of mikill „riddari á hvítum hesti“. Þetta er gert til að höfða frekar til krakkana og það er í lagi. Það eru stór nöfn sem tala fyrir karakterana s.s. Troy Baker (sem Batman o.fl.), Nolan North (Beastboy o.fl) og Conan O’Brien sem hann sjálfur.
Varðandi 8 ára strákana þá dýrkuðu þeir leikinn svo að formúlan virkar. Þeir voru mjög sáttir við það að flækjast um í Leðurblökuhellinum (sem skiptist í mörg stór svæði með ýmsum verkefnum og virkar sem opni heimurinn í leiknum), búa til nýja kalla o.frv. frekar en endilega að fylgja söguþræðinum. Einnig eru litlir leikir inni í leiknum sem byggjast á klassík eins og Pacman eða Caterpillar. Þannig að það er margt að dunda sér við í Batman 3: Beyond Gotham.
Það er lítið meira hægt að segja um Lego leik, krakkar elska þá og sama gildir um þennan. Þetta er ekki slæmur leikur og það er nóg að gera og safna. Hins vegar mæli ég frekar með Lego Marvel Super Heroes sem er aðeins aðgengilegri og opni heimurinn þar er mjög vel heppnaður. Gef honum 3 stjörnur af 5 en þeir yngri gefa honum 4 af 5.