Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Íslenskt»Draumar í myndasögusamkeppni og -sýningu Borgarbókasafnsins 2015
    Íslenskt

    Draumar í myndasögusamkeppni og -sýningu Borgarbókasafnsins 2015

    Höf. Nörd Norðursins18. september 2014Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Borgarbókasafn Reykjavíkur og Myndlistaskólinn í Reykjavík í samstarfi við Nexus standa fyrir myndasögusamkeppni og -sýningu fyrir fólk á aldrinum 10-20+ ára.

    nemo_borgarbokasafn_draumarSýningin verður í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Hún verður opnuð sunnudaginn 3. maí, kl. 15.00 og stendur út maímánuð. Við opnun sýningarinnar verða úrslit samkeppninnar tilkynnt og verðlaun afhent við hátíðlega athöfn.

    Þetta er í sjöunda sinn sem samkeppnin / sýningin er haldin og keppt er í tveimur aldurshópum: yngri og eldri.

    Eins og tíðkast hefur er samkeppnin helguð tiltekinni myndasöguhetju og -þema. Að þessu sinni verður litið aftur til grárrar forneskju, en árið 2015 eru liðin hundrað og tíu ár síðan ein af fyrstu vinsælu persónum myndasagnanna leit dagsins ljós, litli drengurinn Nemo eftir Winsor McCay. Nemo litli ferðast um ævintýraheima á nóttunni, í draumum sínum og því er þemað að þessu sinni „Draumar“.

    Dómnefnd skipa Signý Kolbeinsdóttir hönnuður, Sirrý (Margrét Lárusdóttir) myndasöguhöfundur og Björn Unnar Valsson bókmenntafræðingur.

    Miðað er við að hámarkslengd efnis sé tvö A4 blöð eða ein síða í A3 (öðru megin) og eru þátttakendur beðnir um að nota frekar þykkan pappír en ekki venjuleg fjölritunarblöð til að tryggja að verkin verði fyrir sem minnstu hnjaski í upphengingu. Vinnuaðferðin er algerlega frjáls og verkin geta hvort sem er verið myndasaga eða stök mynd með myndasöguþema eða mynd sem tengist myndasögum á einhvern hátt.

    Þátttakendur skili verkunum á Borgarbókasafnið, aðalsafn, Tryggvagötu 15, í umbúðum merktum: „Draumar 2015“. Síðasti skiladagur er 17. apríl 2015. Vinsamlega athugið að láta fylgja fullt nafn, fæðingarár, símanúmer og tölvupóstfang.

    Nánari upplýsingar um samkeppnina / sýninguna verða settar á vef Borgarbókasafnsins þegar nær dregur, sjá borgarbokasafn.is.

    – Fréttatilkynning frá Borgarbókasafni // Myndir: Little Nemo eftir Windsor McCay

    borgarbókasafn draumar Nemo
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaOfvitar #22 – Töff
    Næsta færsla RIFF snýr aftur
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026

    Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu

    24. janúar 2026

    Geisladiskabúð Valda á tímamótum

    17. janúar 2026

    Lúpína syngur frumsamið lag í Echoes of the End – „Þetta var mjög skemmtilegt ferli“

    4. janúar 2026

    Ásbrú sögusvið í súrealískum hryllingsleik eftir íslenskan leikjahönnuð

    21. desember 2025

    Game Dev Demo Day – Leikjasýning nemenda HR þann 15. desember

    14. desember 2025
    Nýtt á Nörd Norðursins
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026

    Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu

    24. janúar 2026

    Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable

    23. janúar 2026

    Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026

    20. janúar 2026

    Bestu tölvuleikir ársins 2025

    19. janúar 2026
    Leikjarýni
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    5.5

    Football Manager 26 – Tæknilegt sjálfsmark

    6. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur
    • Íslenskir tölvuleikir á UTmessunni 6. – 7. febrúar í Hörpu
    • Nýtt sýnishorn og útgáfurammi gefinn út fyrir Fable
    • Leikjavarpið #65 – Væntanlegir leikir 2026
    • Bestu tölvuleikir ársins 2025
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.