Birt þann 26. janúar, 2014 | Höfundur: Nörd Norðursins
0PS4 kvöldopnun í Gamestöðinni 28. janúar
Formlega kemur PlayStation®4 út á Íslandi miðvikudaginn 29. janúar en Skífan og Gamestöðin taka forskot á sæluna með kvöldopnun í verslununum í Kringlunni og Smáralind. Fyrstu eintökin af PlayStation®4 verða afhent kl. 21:00 á þriðjudagskvöld en opið verður til kl. 23:00.
Gríðarleg spenna hefur verið fyrir PS4 en heil sjö ár eru frá því að PlayStation®3 kom út. Um algjörlega byltingu er að ræða og er upplifunin af því að spila henni henni engu lík.
PS4 hefur þegar selst í yfir 4 milljónum eintaka á heimsvísu og hafa viðtökurnar verið afar góðar.
„Við hjá Gamestöðinni erum virkilega spennt að geta loksins byrjað að selja PS4 til Íslendingar þar sem PlayStation hefur alltaf haft mikla yfirburði á íslenska markaðnum. Það kemur aðeins takmarkað magn af PS4 til landsins og því líklegt að það seljist upp fyrsta kvöldið. Fyrstur kemur, fyrstu fær,“ segir Ágúst Guðbjartsson, framkvæmdastjóri Skífunnar og Gamestöðvarinnar.
Í tilefni af sölunni á PS4 verða aukahlutir og leikir fyrir PS4 á 10% afslætti fyrir þá sem kaupa vélina í forpöntun eða á kvöldopnunni sjálfri. Nöfn allra þeirra sem kaupa PS4 verða sett í pott og verða tveir heppnir einstaklingar dregnir út sem fá vélar sínar greiddar að fullu til baka.
Smelltu hér til að lesa PS4 umfjöllun okkar