Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Allt annað»10 atriði sem gera golfleikinn skemmtilegri
    Allt annað

    10 atriði sem gera golfleikinn skemmtilegri

    Höf. Nörd Norðursins3. júlí 2012Uppfært:22. janúar 2013Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Nú þegar sumarið er komið, eiga nördar á hættu að lenda í þeim erfiðu aðstæðum að þurfa að spila golf. Hérna eru tíu atriði sem gætu hjálpað til við að gera leikinn skemmtilegri.

     


    1. Í stað þess að garga „FORE!“ skal hrópa „may the FORCE be with you“ – „FORCE” þarf að vera hrópað hátt en hávaðastuðull „may the“ og „be with you“ fer eftir geðþótta nördans hverju sinni (stoltustu nördarnir hrópa þó öll orðin jafnhátt).
    2. Stattu á miðri braut, rífðu þig úr að ofan, búðu þig undir að grípa golfkúlur með munninum og öskraðu „SHO’NUFF” með reglulegu millibili.
    3. Í sjúkrabílnum (sjá nr. 2) biðuru um heilsu-elexír og ef því er svarað neitandi spyrðu sjúkraliðana hvort að þeir hafi nægilegt magn mana fyrir „full heal”.
    4. Málaðu kylfurnar bláar eða rauðar, haltu á þeim eins og sverði og öskraðu á golfkúlurnar „training orb; activate!”
    5. Í hvert sinn sem mótspilarinn nær inn á flöt á undan þér, taktu þér stöðu fyrir framan holuna, sláðu niður kylfunni og öskraðu á hann „You shall not pass!”
    6. Gríptu golf tí með þumal- og vísifingri og leitaðu á bak við tré og runna. Þegar einhver spyr hvað þú sért að gera, hrekkurðu í kút og segir „pínulitlu vampírurnar, þær eru hérna einhvers staðar!”
    7. Ef kúlan lendir í sandgryfju, potaðu í hana nokkrum sinnum með kylfunni og muldraðu eitthvað um að maður sé aldrei of varkár þegar um sandorma er að ræða.
    8. Ef þú ert spurður hvers vegna þú notir ekki tré segðu að það megi kalla þig Járnmanninn.
    9. Þegar einhver æpir „fugl” skimaðu þá í kringum þig skelfingu lostinn og segðu „hversu reiður?”
    10. Þegar einhver segist ætla nota „Wedge”, segðu þá „Antilles?” og hlæðu eins og brjálæðingur.

     

     

     

    Eitthvað fleira sem ykkur dettur í hug?
    Endilega látið vaða.

     

    Mynd: SpikeTV auglýsing

    – Steinar Logi

    golf Steinar Logi Sigurðsson topplisti
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færslaLeikjarýni: Starhawk
    Næsta færsla Ný ódýr leikjatölva með ókeypis leikjum mögulega væntanleg
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Leikjalisti dj flugvélar og geimskips

    13. febrúar 2026

    Bestu tölvuleikir ársins 2025

    19. janúar 2026

    Leikjavarpið #55 – Leikir ársins 2024 og Switch 2 orðrómar

    13. janúar 2025

    Allt það vinsælasta á Nörd Norðursins árið 2024

    1. janúar 2025

    NBA2K25 – Lengi getur vont versnað

    19. september 2024

    Senua’s Saga: Hellblade 2 (PC) – „Senua kemur til Íslands“

    21. maí 2024
    Nýtt á Nörd Norðursins
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026
    Leikjarýni
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    • Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    • Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft
    • Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum
    • Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.