Loka valmynd
    Facebook Instagram YouTube Spotify TikTok Twitch
    Nörd Norðursins
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    • Fréttir
    • Greinar
    • Leikjarýni
    • Íslenskt
    • Leikjavarpið
    • Viðburðir
    Nörd Norðursins
    Heim»Menning»Bækur og blöð»Tvær nýjar hrollvekjur komnar í verslanir
    Bækur og blöð

    Tvær nýjar hrollvekjur komnar í verslanir

    Höf. Nörd Norðursins19. maí 2012Uppfært:21. maí 2012Engar athugasemdir2 mín. lestur
    Facebook LinkedIn Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Deila
    Facebook Tölvupóstur Afrita hlekk Bluesky Reddit

    Bókaútgáfan Rúnatýr var um þessar mundir að gefa út tvær hrollvekjur á íslensku; Kall Cthulhu og Þoka. Að því tilefni sendi Rúnatýr frá sér eftifarandi fréttatilkynningu:

    Margir hrollvekjuunnendur þekkja verk H. P. Lovecrafts sem er einn af áhrifamestu höfundum hryllingsbókmennta samtímans. Hann er talinn vera einn af spörgöngumönnum furðusagna og í sögum hans mætast hrollvekjan og fantasían á skemmtilegan hátt. Núna hafa fimm af sögum hans verið þýddar á íslensku og eru fáanlegar, allar saman, í bókinni Kall Cthulhu og fleiri hrollvekjandi smásögur sem gefin var út á dögunum.

    Áhrif Lovecrafts ótvíræð

    Í bókinni eru m.a. þýðingar á sögunum Call of Cthulhu og At the Mountains of Madness sem eru meðal þekktustu verka Lovecraft. „Ég hef alltaf dáðst að Lovecraft en ég byrjaði að lesa hann á unglingsárunum. Það sem gerir sögurnar hans góðar er sá veruleiki sem hann býr til, þar sem manneskjan er aðeins hverful tilviljun í ógnarstórum veruleika. Þetta hafa margir reynt að leika eftir en fáum tekist jafn vel upp að mínu mati,“ segir Þorsteinn Mar sem þýddi sögurnar. „Margir höfundar hafa leitað til Lovecrafts og nefna margir af helstu genre-rithöfundum samtímans hann sem einn helsta áhrifavald sinn, höfundar á borð við Stephen King, Brian Lumley og Neil Gaiman.“

    Íslensk hrollvekja sem gerist í Reykjavík

    En Þorsteinn skrifar líka sjálfur og var að gefa út sína aðra bók, skáldsöguna Þoku. „Sagan er hrollvekja, en þó ekki í anda Lovecraft þó í henni séu ákveðin einkenni weird-fiction,“ segir Þorsteinn. Í bókinni segir frá því þegar mannlaust skip finnst á Faxaflóa. Enginn veit hvaðan það kom, hvers lenskt það er eða hvernig það endaði við Íslandsstrendur. Eftir að lögreglan hefur rannsóknir á skipinu hefst hrina hryllilegra morða í Reykjavík og undarleg þoka leggst yfir borgina við Sundin.

    Í fyrra sendi Þorsteinn frá sér smásagnasafnið Myrkfælni og fékk hún ágæta dóma gagnrýnenda. „Myrkfælni… er skemmtileg nýbreytni og höfundur fer vel af stað með sinni fyrstu bók.“ (SG/Morgunblaðið) „…tekst Þorsteini hvað eftir annað að skapa verulega hrollvekjandi stemningu.“ (ÚD/Bókmenntir.is).

    Bækurnar eru gefnar út af bókaútgáfunni Rúnatý, sem hyggst einbeita sér að ýmsum jaðarbókmenntum, s.s. hrollvekjum, fantasíum og vísindaskáldsögum.

    Smelltu hér til að heimsækja heimasíðu Rúnatýs.

    hrollvekjur Kall Cthulhu Rúnatýr Þoka Þorsteinn Mar
    Deila. Facebook Twitter Reddit Tölvupóstur Bluesky Afrita hlekk
    Fyrri færsla16 nördatýpur
    Næsta færsla Hádegisfundur Ský: Reynsla af rafrænum íbúakosningum
    Nörd Norðursins
    • Facebook

    Birt af ritstjórn

    Svipaðar færslur

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    StarCraft Festival á Next Level Gaming 7. mars

    19. febrúar 2026

    Echoes of the End bætist við PlayStation Plus katalóginn

    18. febrúar 2026

    Verkfærakista foreldra – Roblox, Fortnite og Clash Royale

    15. febrúar 2026
    Nýtt á Nörd Norðursins
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026

    Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming

    8. mars 2026

    Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft

    5. mars 2026

    Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum

    4. mars 2026

    Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox

    2. mars 2026
    Leikjarýni
    7.7

    Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn

    8. mars 2026
    8

    Echoes of the End – fallegur og fjölbreyttur ævintýraleikur með íslenskar rætur

    25. janúar 2026
    8

    Þegar leikur biður þig um að hætta að reyna

    14. janúar 2026
    7.5

    Úr öskunni í eldinn

    2. janúar 2026
    7.8

    Lifðu af sem músarungi í Winter Burrow

    11. desember 2025
    Nýjast á Youtube
    https://youtu.be/84R6rYZR0nQ

     Um okkur 

    Leita á vef
    Nýjar færslur
    • Fjallaklifur og þolinmæði í Cairn
    • Mario Con 10.-15. mars á Next Level Gaming
    • Íslendingurinn sem varð atvinnumaður í StarCraft
    • Rita sögu EVE Online með blóði úr spilurum
    • Leikjavarpið #68 – God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
    Facebook Instagram YouTube Spotify Bluesky TikTok Twitch
    © 2026 Nörd Norðursins.

    Skrifaðu fyrir ofan og ýttu á Enter til að leita. Ýttu á Esc til að hætta við.