Birt þann 19. maí, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins
0Hádegisfundur Ský: Reynsla af rafrænum íbúakosningum
Skýrslutæknifélag Ísland (Ský) mun standa fyrir hádegisfundi þann 23. maí 2012 kl. 12 – 14 á Grand hóteli með yfirskriftinni „Reynsla af rafrænum íbúakosningum“.
Dagskrá fundarins kemur fram í eftirfarandi tilkynningu frá Ský:
Rafrænar íbúakosningar fóru fram í Reykjavík dagana 29. mars til 3. apríl 2012. Á fundinum verður fjallað um aðdraganda og útfærslu kosninganna og þann lærdóm sem draga má af framkvæmd slíkra kosninga.
11:50-12:05 Afhending ráðstefnugagna
12:05-12:20 Hádegisverður borinn fram
12:20-12:30 Rafrænar íbúakosningar í Reykjavík
Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík
12:30-12:45 Lagaleg álitaefni við í aðdraganda íbúakosninganna
Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar, Reykjavíkurborg
12:45-13:05 Framkvæmd kosninganna
Eggert Ólafsson, rekstrarstjóri upplýsingatæknimiðstöðvar Reykjavíkurborgar, Reykjavíkurborg
13:05-13:20 Kosningakerfið, viðmót og virkni
Gunnar Grímsson, framkvæmdastjóri Íbúa SES
13:20-13:35 Auðkenning og eftirlit
Bragi Leifur Hauksson, verkefnastjóri, Þjóðskrá Íslands – Ísland.is
13:35-13:45 Lokaerindi
Taktu þátt í umræðum á Twitter: @SkyIceland #rafrib
Verð fyrir félagsmenn Ský: 4.900 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 7.900 kr.
Verð fyrir einstaklinga utan vinnumarkaðar: 3.000 kr.
Nánari upplýsingar fást á heimasíðu Ský; www.sky.is.