Fréttir

Birt þann 27. mars, 2017 | Höfundur: Nörd Norðursins

Íslenskt Game Jam hófst í dag og stendur yfir í viku!

Leikjadjammið er opið öllum hópum og einstaklingum en nauðsynlegt er að senda inn leikinn ásamt tilkynningu til IGI fyrir miðnætti mánudaginn 3. apríl til að vera með.

IGI (Icelandic Gaming Industry) samfélagið stendur fyrir Game Jam sem hófst formlega í dag og stendur yfir í viku. Þetta er í annað sinn sem að IGI skipuleggur svokallað Game Jam, eða leikjadjamm eins og það mætti kalla á óformlegri íslensku, en þar kemur saman áhuga- og fagfólk á sviði leikjahönnunar þar sem keppt er um að búa til nýja leiki á stuttum tíma og þá gjarnan út frá ákveðnum reglum eða þema. Leikjadjammið er opið öllum hópum og einstaklingum en nauðsynlegt er að senda inn leikinn ásamt tilkynningu til IGI fyrir miðnætti mánudaginn 3. apríl til að vera með.

Valin hafa verið þrjú þemu og er ráða þátttakenndur hvort þeir velji eitt, tvö eða öll þrjú þemun:

  • Couch Co-op
  • 30 Seconds og
  • Hivemind

Ekki er nauðsynlegt að vinna alla vikuna að gerð leiksins, heldur geta nokkrir klukkutímar dugað. Hægt er að skrá sig til leiks á hvaða tímapunkti sem er, en nauðsynlegt er að skila inn fyrir miðnætti 3. apríl. Við nördarnir hvetjum að sjálfsögðu sem flesta til að taka þátt! Nánari upplýsingar má finna á Facebook viðburðinum IGI Pub Jam.

Þátttakenndur og áhugasamir geta tekið þátt í umræðum á Slack. Að loknu leikjadjammi verður svo IGI hittingur á Bryggjan brugghús (Facebook viðburður) þriðjudaginn 4. apríl þar sem þátttakenndur fá tækifæri til að kynna og sýna leikina sína og spjalla um leikjadjammið og tölvuleiki. Allir velkomnir, sama hvort þeir tengjast leikjaiðnaðinum eða ekki.

Mynd: IGI Pub Jam á Facebook

Deila efni

Tögg: , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑