Fréttir

Birt þann 22. júlí, 2016 | Höfundur: Nörd Norðursins

Skráning hafin á Slush Play ráðstefnuna

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu á Slush Play ráðstefnuna sem haldin verður í Reykjavík dagana 29. og 30. september næst komandi. Um er að ræða ráðstefnu þar sem innlendir og erlendir sérfræðingar munu fjalla um nútíð og framtíð sýndarveruleika og tölvuleikja.

Þetta er í annað sinn sem Slush Play ráðstefnan er haldin hér á landi. Í fyrra var hún haldin í Gamla bíó og stóðst hún algjörlega væntingar okkar nördanna, svo það er óhætt að mæla með þessari ráðstefnu fyrir þá sem hafa mikinn áhuga á sýndarveruleika og/eða tölvuleikjum. Í fyrra sáum við verkefni frá erlendum og íslenskum fyrirtækjum á borð við Solid Clouds, Radiant Games, Aldin Dynamics, Sólfar og CCP og hafa öll þessi fyrirtæki síðan þá haldið áfram í þróun sýndarveruleika og tölvuleikja. Meðal annars hefur CCP hlotið lof fyrir leik sinn EVE Valkyrie, Sólfar hefur heillað erlenda fjölmiðla (þar á meðal Forbes) með Everest sýndarveruleika sínum, Radiant Games gaf út Box Island sem vann svo til verðlauna á Nordic Game Awards og Solid Clouds birti nýlega nýtt sýnishorn úr Starborne, væntanlegum fjölspilunar geimleik sem er í vinnslu um þessar mundir.

Staðfestir fyrirlesarar í ár eru Peter Y. Levin frá Lionsgate Entertainment, Julie Heyde frá VRUnicorns, Hilmar Veigar Pétursson frá CCP, Kjartan Pierre Emilsson frá Sólfar, Oddur Magnússon frá Klang Games, Þór Friðriksson frá Plain Vanilla, Mik Stroyberg frá Lemonsqueeze, Sara Vogl frá Lucid Trips / VRNerds og Neil Murray frá Nordic Web.

Ráðstefnupassar kosta frá 130 Evrum, eða u.þ.b. 17.500 kr. á núverandi gengi, upp í 260 Evrur, sem gera u.þ.b. 35.000 kr. Hefðbundinn passi kostar 210 Evrur, eða í kringum 28.000 kr. Hægt er að panta passa á heimasíðu Slush Play: www.slush.org/play.

Deila efni

Tögg: , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑