Bíó og TV

Birt þann 21. júlí, 2016 | Höfundur: Bjarki Þór Jónsson

Sjónvarpsþáttarýni: Stranger Things – „gallalausir þættir sem eru troðfullir af nostalgíu“

Sjónvarpsþáttarýni: Stranger Things – „gallalausir þættir sem eru troðfullir af nostalgíu“ Bjarki Þór Jónsson

Samantekt: Stranger Things eru virkilega vandaðir þættir sem ná að endurskapa stemningu níunda áratugarins.

5

Skylduáhorf!


Einkunn lesenda: 4.5 (7 atkvæði)

Stranger Things eru nýir sjónvarpsþættir í boði Netflix. Það eru Duffer bræður (Matt og Ross Duffer) sem skrifa þættina og leikstýra flestum þeirra, en þeir eiga frekar stuttan feril að baki í kvikmyndabransanum.

Winona Ryder og David Harbour fara með aðalhlutverk í fyrstu seríunni auk úrvali ungra leikara. Öll fyrsta serían var gerð aðgengileg frá fyrsta degi á Netflix en þættirnir eru samblanda af vísindaskáldskap, hrollvekju og fantasíu.

Með góða þætti gildir oft sú regla að því minna sem þú veist um þættina því betra og þess vegna ætla ég ekki að fara nánar útí söguþráð þáttanna, heldur frekar sýna þetta myndbrot sem sýnir fyrstu átta mínúturnar úr fyrsta þætti Stranger Things (horfið frekar á þessar mínútur úr fyrsta þætti til að kynna ykkur þættina frekar en stiklur úr sjónvarpsþáttunum þar sem sumar stiklur innihalda spilla). Þessar átta mínútur ná algjörlega að fanga mann og restin af þáttunum nær að standast allar væntingar og gott betur.

Stranger Things eru virkilega vandaðir þættir sem ná að endurskapa stemningu níunda áratugarins og eru einskonar samblanda af The Goonies, E.T og hryllingsmyndum Stephen Kings. Í þáttunum er mikið spilað og vísað í Dungeon & Dragons hlutverkaspilið og rökfræði og vísindi notuð til að leysa ónáttúrulegar ráðgátur.

Niðurstaðan hjá Duffer bræðrum er ótrúleg. Allt smellur saman hjá þeim; sagan, kvikmyndatakan, persónurnar, umhverfið, tónlistin, samtölin og ráðgáturnar.

Niðurstaðan hjá Duffer bræðrum er ótrúleg. Allt smellur saman hjá þeim; sagan, kvikmyndatakan, persónurnar, umhverfið, tónlistin, samtölin og ráðgáturnar. Krakkarnir í þættinum eiga einni stórt hrós skilið fyrir frábæran leik. Tónlistin spilar einnig stórt hlutverk í myndinni og nær að endurvekja upp gamla stemningu með vel völdum lögum og virkilega flottu þemalagi. Þetta eru gallalausir þættir sem eru troðfullir af nostalgíu og er hiklaust hægt að mæla með fyrir eldri sem og yngri áhorfendur (þættirnir eru bannaðir innan 14 ára). Stranger Things fylla auðveldlega upp í fimm stjörnu skalann okkar – frábærir þættir!

Deila efni

Tögg: , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Efst upp ↑