Viðburðir

Birt þann 26. maí, 2016 | Höfundur: Nörd Norðursins

TEDxReykjavík 2016 ráðstefnan haldin 28. maí í Austurbæ

TEDxReykjavík ráðstefnan verður haldin í sjötta sinn þann 28. maí næstkomandi í Austurbæ. Á viðburðinum gefst þátttakendum einstakt tækifæri til að heyra erindi fjölbreytts hóps mælenda sem eru meðal áhugaverðustu hugsuða, frumkvöðla og listafólks landsins. Mælendurnir munu hver og einn kynna til sögunnar hugmyndir sínar sem tengjast viðfangsefnum sem eru þeim sérstaklega hugleikin, allt frá náttúruvernd og tæknilegri framþróun til samfélagslegra breytinga og viðhorfs okkar til listarinnar.

Þema ársins er áhrif innlendra hugmynda á heimsvísu.

Þema ársins er áhrif innlendra hugmynda á heimsvísu. Kastljósinu verður varpað á það hvernig hugmyndir sem spretta úr okkar nánasta umhverfi hér á Íslandi geta náð flugi og haft áhrif út fyrir landsteinana. Á TEDxReykjavík ráðstefnunni gefst þátttakendum tækifæri til að eiga góða samverustund með spennandi fyrirlesurum og sviðslistamönnum, eiga áhugaverð samtöl og mynda tengingar sín á milli.

Á meðal mælenda í ár eru:

Vignir Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Radiant Games, sem mun ræða um af hverju forritun er að hans mati læsi 21. aldarinnar og hvers vegna við þurfum að kynna börn fyrir tölvunarfræði miklu fyrr en við gerum nú. Einnig mun hann segja aðeins frá Box Island, tölvuleiknum frá Radiant Games sem ætlað er að kynna börn fyrir þessum hugmyndum.

Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir og prófessor í skurðlækningum með brennandi áhuga á umhverfisvernd, mun ræða um íslenska hálendið og hvernig best má gæta að „hjarta Íslands.

Vilborg Arna Gissurardóttir, fyrsti Íslendingurinn til að skíða ein síns liðs frá strönd Suðurskautslands til suðurpóls, mun ræða um reynslu sína og þær hindranir sem hún mætti við að uppfylla draum sinn.

Á ráðstefnunni gefst gestum einnig tækifæri á að taka þátt í umræðuhópum, spyrja ræðumenn spurninga og ýmislegt fleira. Til dæmis verður hægt að prófa tölvuleikinn Gunjack frá CCP í Samsung Gear VR tækjum. Léttur hádegisverður og fleiri veitingar verða í boði TEDxReykjavík.

Miðaverð er 7500 kr.
Miðar fást á midi.is.

Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Efst upp ↑