Tölvuleikir

Birt þann 17. apríl, 2016 | Höfundur: Bjarki Þór Jónsson

Myndbönd: Aðalfundur IGI – QuizUp, Everest VR og HR

Fimmta apríl síðastliðinn var aðalfundur IGI, Icelandic Game Industry, haldinn á Vox í Reykjavík. Þar voru meðal annars nýjar hagtölur kynntar úr leikjaiðnaðinum hér á Íslandi. Þar kom meðal annars fram að uppsöfnuð velta íslenska leikjaiðnaðarins frá árinu 2008 eru 68 milljarðar króna og að meðalvöxtur iðnaðarins sé um 18% á ári. Auk þess fór ný heimasíða IGI í loftið sama dag.

Á Vimeo-síðu Samtaka iðnaðarins er að finna fjórar upptökur frá aðalfundinum.

1) Í þessu myndbandi talar Þorsteinn Baldur Friðriksson frá Plain Vanilla um reynslu sína með QuizUp og að ný fyrirtæki eigi að vera óhrædd við að biðja notendur um peninga með beinum eða óbeinum hætti.

2) Í næsta myndbandi heyrum við Kjartan Emilsson frá Sólfar kynna Everest VR, samstarfsverkefni Sólfar og RVX, og mikilvægi þess að hafa gott tengslanet og hvernig það getur skilað sér í nýjum tækifærum og markaðssetningu.

3) Í þriðja myndbandinu segir David Thue okkur frá því sem er að gerast í Háskólanum í Reykjavík, í tengslum við íslenska leikjaiðnaðinn varðandi verkefni og starfsþjálfun nemenda. David fer meðal annars yfir hvernig iðnaðurinn getur tengt sig við háskólanámið og sýnir nokkur dæmi um afrakstur nemenda og leikjafyrirtækja.

4) Endum svo þessa syrpu á samantekt frá aðalfundinum þar sem Hilmar Veigar Pétursson hjá CCP, Almar Guðmundsson frá Samtökum iðnaðarins og Vignir Örn Guðmundsson frá Radiant Games fara yfir það sem er að gerast í IGI og leikjaiðnaðinum almennt á Íslandi

Deila efni

Tögg: , , , , , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Efst upp ↑