Bækur og blöð

Birt þann 2. maí, 2015 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Ókeypis myndasögudagurinn er í dag!

Í dag, laugardaginn 2. maí, er hinn árlegi Ókeypis myndasögudagur, eða Free Comic Book Day eins og dagurinn heitir á ensku. Að venju heldur Nexus upp á daginn líkt og þúsundir myndasöguverslana um allan heim, en markmiðið með deginum er að kynna myndasöguformið meðal annars með því að gefa sérútgefin – og ókeypis – myndasögublöð.

Nexus byrjar að gefa blöð kl. 13:00 í verslun sinni, Nóatúni 17, og mun gefa blöð á meðan birgðir endast. Þar verður meðal annars hægt að næla sér í eintak af íslenska blaðinu ÓkeiPiss sem að Nexus og Ókei-bækur gefa út í fimmta sinn í ár. Á Facebook viðburðinum er fólki bent á að mæta tímanlega til að forðast langar biðraðir. Sömuleiðis er búningaáhugafólk hvatt til þess að mæta í búningum!

Skoða viðburðinn á Facebook

 

Höfundur er
Bjarki Þór Jónsson,

Deila efni

Tögg: , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑