Íslenskt

Birt þann 11. febrúar, 2015 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Kveikjarinn – Nýtt íslenskt smáforrit

Kveikjarinn er forrit til að þjálfa sköpun í formi skapandi skrifa og ritlistar. Kveikjarinn hentar fólki á öllum aldri sem langar að æfa sig í ritlist og virkja sköpunarhæfileika sína. Kveikjarinn er einnig gagnlegt forrit í hefðbundnu skólastarfi en sköpun hefur verið skilgreind sem einn af sex grunnþáttum menntunar.

Æfingarnar í Kveikjaranum er fjölbreytilegar og oft mog frumlegar. T.d. gætirðu átt að skrifa lýsingu á íþróttaleik í augum geimveru eða skrifa ástarsögu þar sem aðalsögupersónan er trúður sem drekkur mjög mikið kaffi.

Markmið Kveikjarans er að hjálpa notanda að þroska sköpunargáfu, tjáningarmáta og sjálfsvitund sína og þjálfast í: skapandi skrifum, að byggja upp texta, að nota fjölbreyttar aðferðir til að lýsa aðstæðum, stöðum og persónum, að nota jafnt ímyndunarafl og rökhyggju, að þora að láta vaða og að hugsa út fyrir boxið.

Kveikjarinn er gefinn út af Gebo Kano ehf. fáanlegur í App Store og virkar á iPad og iPhone.
Höfundur Kveikjarans er Guðný Þorsteinsdóttir, námsefnishöfundur og B.Ed. í grunnskólakennarafræðum.

Deila efni

Tögg: , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑