Bíó og TV

Birt þann 9. október, 2014 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Gullni lundinn, list og hryllingur á RIFF 2014

Síðastliðinn sunnudag lauk RIFF. Í ár voru sýndar yfir hundrað myndir frá fjörtíu löndum á aðeins ellefu dögum. Það þýðir að það er erfitt að ná að sjá allar þær myndir sem maður hefur áhuga á að fara á. Þetta var í fyrsta sinn sem ég fer á þessa hátíð og get því miður ekki borið hana saman við fyrri ár. Ég er þó full viss um að ég fari aftur á næsta ári þar sem þessi hátíð var mjög skemmtileg og mjög notalegt andrúmsloft lá yfir hátíðinni.

Síðastliðinn laugardag fór fram verðlaunaafhending hátíðarinnar þar sem ítalska myndin Ég hætti þegar ég vil vann Gullna lundann/uppgötvun ársins. Ég hætti þegar ég vil er fyrsta myndin sem leikstjórinn Sydney Sibilia leikstýrir. Einnig vann breska myndin Þrettán blátt Gullna eggið og Málarinn var valin besta íslenska stuttmyndin. Hægt er að sjá lista yfir allar myndirnar sem unnu til verðlauna hér á heimasíða RIFF. Því miður náði ég ekki að sjá neina af þeim myndum sem fengu verðlaun en mínar uppáhalds myndir sem ég sá á RIFF voru Babadook, sem ég skrifaði dóm um síðastliðinn laugardag, og Art and Craft.

Art and Craft er heimildarmynd sem segir frá sögu listamannsins Mark Landis. Mark Landis er enginn venjulegur listamaður því hann hefur ekki en skapað sitt eigið málverk heldur gerir hann nákvæmar eftirlíkingar eftir öðrum málverkum. Landis er heldur ekki venjulegur falsari sem selur verkin sín á söfn því hann gefur þau frá sér og er því ekki að fremja neina glæpi. Myndin kafar nokkuð djúpt í líf og sögu Mark Landis þar sem talað er við hann og menn sem eru virkilega á móti því sem hann er að gera. Art and Craft er án efa ein af mínum uppáhalds heimildarmyndum.

Hvaða myndir sást þú á RIFF?

Hvaða mynd hefði átt að vinna gullna lundann eða eggið? Endilega látið okkur vita.

 

Höfundur er Þrándur Jóhannsson,
fastur penni á Nörd Norðursins.

 

Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑