Bíó og TV

Birt þann 16. júlí, 2014 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Ný stikla úr Angry Video Game Nerd: The Movie

Í næstu viku verður kvikmyndin Angry Video Game Nerd: The Movie frumsýnd í Bandaríkjunum og hefur ný stikla úr myndinni litið dagsins ljós. Ofurnördið James Rolfe, eða Angry Video Game Nerd eins og hann er betur þekktur sem, hefur notið gríðarlegra vinsælda á YouTube fyrir samnefnda þætti þar sem James spilar – og pirrast mjög – yfir gömlum tölvuleikjum.

Til gamans má geta þá tókum við hjá Nörd Norðursins viðtal við reiða leikjanördið í fyrra og gagnrýndum auk þess AVGN þættina á DVD.

Við bendum þeim lesendum sem hafa áhuga á AVGN einnig á nokkra þætti um retroleiki sem er vert að horfa á að mati Kristins Ólafs og 10 uppáhalds nörda YouTube rásirnar hans Helga Freys.

Hér má svo sjá eldri stikluna úr myndinni frá árinu 2012:

 

Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
leikjanörd og ritstjóri Nörd Norðursins.

 

Deila efni

Tögg: , , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑