Allt annað

Birt þann 6. apríl, 2014 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Nörd Norðursins 3 ára

4. apríl síðastliðinn voru nákvæmlega þrjú ár liðin frá því að Nörd Norðursins hóf göngu sína. Upphaflega byrjaði Nörd Norðursins sem veftímarit (sem er ennþá hægt að nálgast ókeypis hér á Issuu) en eftir fimm tölublöð var ákveðið að fókusa á heimasíðuna. Á þessum þremur árum höfum við birt mörg hundruð færslur, allt frá minni fréttum upp í stærri greinar, viðtöl og gagnrýni. Markmið Nörd Norðursins er að efla íslenska nörda samfélagið í heild sinni og um leið vekja athygli á því og höfum við gert það með því að fjalla um fjölbreytt efni sem eiga það eitt sameiginlegt að kallast nördaleg (eins erfitt og það er að skilgreina það hugtak!).

Okkur langar að þakka ykkur lesendum kærlega fyrir að sýna síðunni okkar áhuga og því sem við höfum verið að skrifa. Án ykkar væri þetta ekki svona skemmtilegt. Fleiri lesendur eru stöðugt að bætast við hópinn sem hefur aldrei verið fjölmennari en einmitt í dag. Ég vil minna á að alltaf má gera betur og þess vegna hvet ég lesendur sem eru með athugasemdir, góðar eða slæmar, til að hafa samband við okkur á nordnordursins(at)gmail.com. Einnig vil ég benda á að við hjá Nörd Norðursins erum ávallt að leita að nýjum pennum og tökum auk þess á móti innsendu efni frá lesendum. Ekki hika við að senda okkur línu á nordnordursins(at)gmail.com.

Ég þakka fyrir lesturinn og enda þessa færslu á nokkrum áhugaverðum staðreyndum um Nörd Norðursins:

 

» Nörd Norðursins er skrifað af nördum fyrir nörda.

» Nörd Norðursins er óháð vefsíða.

» Nörd Norðursins byrjaði nýlega með fréttabréf – hér er hægt að skrá sig.

» Við birtum sérstakt viðtal við Angry Video Game Nerd, Leðurfés og hlustuðum á Bruce Campbell.

» Nörd Norðursins gaf heppnum lesendum The Dark Knight Trilogy Ultimate Collectors Edition á Blu-Ray, LEGO Marvel Super Heroes og bíókort í Bíó Paradís í jólagjöf.

» Nörd Norðursins veitir íslensku efni sérstaka athygli.

» Mest lesna leikjarýnin á Nörd Norðursins er Grand Theft Auto V.

» Mest lesna kvikmyndarýnin á Nörd Norðursins er Man of Steel.

» Mest lesna bókarýnin á Nörd Norðursins er Mists of Llorn.

» Mest lesna spilarýnin á Nörd Norðursins er Íslandssöguspilið.

» Nörd Norðursins er á Facebook, Twitter – og nú líka á Instagram.

» Nörd Norðursins er með 1.353 ljósmyndir á Flickr.

» Nörd Norðursins er með 26 myndskeið á YouTube.

» Nörd Norðursins hyggst ná heimsyfirráðum árið 2021!

 

Takk fyrir lesturinn og megi mátturinn vera með ykkur,

 

Höfundur er Bjarki Þór Jónsson,
ritstjóri Nörd Norðursins.

 

Deila efni

Tögg:


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑