Tækni

Birt þann 3. desember, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

TEDxReykjavíkWomen 2013 – Hvernig eru konur að móta framtíðina?

TEDxRVKwomanFimmtudaginn 5. desember klukkan 18:30 mun TEDxReykjavík í samstarfi við Bíó Paradís bjóða upp á beina útsendingu frá TEDWomen ráðstefnunni sem haldin er í San Francisco.  Þetta er þriðja árið í röð sem TEDWomen ráðstefnan er haldin og er áherslan í ár á uppfinningar: allt frá nýjustu tækniframförum yfir í hvernig finna má nýjar leiðir til að uppræta fátækt. Meðal fyrirlesara verða Sheryl Sandberg, COO hjá Facebook og höfundur bókarinnar Lean In.

TEDWomen er hluti af TED, samtökum sem hafa það að markmiði að færa saman helstu hugsuði okkar tíma og breiða út nýjar hugmyndir sem geta breytt heiminum, enda er slagorð samtakanna “Ideas Worth Spreading”.  TEDx -ráðstefnur (x’ið stendur fyrir sjálfstætt skipulagðar ráðstefnur) eru haldnar út um allan heim og verður hin íslenska TEDxReykjavík haldin í þriðja sinn í maí á næsta ári.

Fyrir útsendinguna mun GreenQloud bjóða upp á viðburð í Bíó Paradís í tengslum við frumkvæðið Konur í tækni. Viðburðurinn er opinn öllum og hefst hann kl 17:00.

 


Dagskrá:

18:30-20:30 To Be Is To Do
22:15-00:00 Wisdom Begins With Wonder (kynnir: Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona og verndari UN Women)
00:15-02:00 To Move The World First Move Yourself (kynnir: Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, leikkona og frumkvöðull)


 

Dagskráin er í þremur liðum og verður hlé á milli dagskrárliða þar sem hægt verður að kaupa sér veitingar. Ekki missa af þessu tækifæri til að heyra hvað konur um allan heim eru að gera til að móta framtíðina. Aðgangur er ókeypis og má nálgast miða í miðasölu Bíó Paradísar og á midi.is.

Upplýsingar um fyrirlesara má finna á heimasíðu viðburðarins á Facebook: TEDxReykjavíkWomen

– Fréttatilkynning frá TEDxReykjavík

 

Deila efni

Tögg: , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑