Greinar

Birt þann 8. ágúst, 2013 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Næsta kynslóð leikjavéla

Hægt er að rökræða að næsta kynslóð leikjavéla snúist ekki bara um Ps4 og Xbox One heldur um úrval á leikjavélum. Þrátt fyrir að Sony, Microsoft og Nintendo eigi klárlega leikjavéla markaðinn um þessar mundir eru til fleiri vélar og aukahlutir sem standa til boða, þá er ekki verið að tala um PC vélar. Hér er smá upptalning og kynning á hinum leikjavélunum sem munu líta dagsins ljós á komandi ári.

 

nvidia-shieldNVIDIA Shield

NVIDIA Shield er leikjavél í formi lófatölvu, vélin byggir á Android tækninni. Hefur þann kost að geta streymt efni úr PC vélinni í gegnum sig og yfir í sjónvarp.

 

OuyaOuya

Ouya leikjavélin byrjaði á Kickstarter og var fljót að ná takmarki sínu, svo virtist sem margir væru spenntir fyrir þessari vél og er hún loksins fáanleg. Vélin hefur fengið mis góða dóma og oftar en ekki hafa þeir verið frekar slæmir.

 

NexusQNexus Q

Google er að vinna í leikjavél sem ber nafnið Nexus Q og gengur á Andriod. Þó svo að vélin hafi verið kynnt á síðasta ári þá hefur hún ekki enn komið á markað fyrir almenning. Einnig er gaman að nefna að Google er einnig að koma með úr og gleraugu, spurning hvort þeir komi með jakkafata línu á næsta ári.

 

Oculus RiftOculus Rift

Oculus Rift er líklega besta dæmið um hvernig hægt er að skilgreina næstu kynslóð í spilun á tölvuleikjum. Þessi gleraugu gera spilaranum kleift að upplifa tölvuleiki á einstakan hátt. Þó svo að hægt sé að kaupa gripinn í dag þá er það einungis fyrir forritara, hins vegar hefur Valve gefið út að leikurinn Half Life 2 styðji gleraugun.

 

Apple consoleApple leikjavél

Tæknilega séð er hægt að segja að Apple TV sé leikjavél, en heyrst hefur að Apple sé að vinna að leikjavél. Sú vél mun aðeins spila leiki sem ætlaðir eru fyrir snjallsíma og spjaldtölvur, því mun vélin ekki ráða við leiki sem Ps4 og Xbox One geta boðið upp á.

 

Samsung Game PadSamsung Game Pad

Samsung Game Pad er fjarstýring sem hægt er að smella við Samsung Galaxy símann og þannig spilað leiki á einfaldari hátt. Þetta er sniðug viðbót við símann en líklegast er verðið á tækinu að fæla marga frá.

 

The Piston

Piston

The Piston vélin sem Xi3 er að búa til er mörgu leikjaáhugafólki kunnug, því þetta er hin umtalaða steam box sem margir töldu að Valve væri að búa til. Hægt verður að uppfæra vélbúnað vélarinnar á eigin vegum og mun vélin einnig vera margmiðlunarspilari. Þrátt fyrir að hafa verið mikið tengdir við gerð vélarinnar hefur Valve ekki opinberalega gefið út þáttöku þeirra í gerð hennar. Ágiskun höfundar hefur lengi verið að þessi leikjavél sé ástæðan fyrir því að við höfum ekki enn fengið Half-Life 3. Þar sem leikurinn væri mjög góð leið til að auka sölur á vélinni, líkt og Halo:CO gerði fyrir fyrstu Xbox vélina.

 

Game stick Game Stick

Game Stick er í stuttu máli USB-drif sem hægt er að tengja við sjónvarpið/tölvuna og þannig spilað Android leiki. Þessi leikjavél notast við Raspberry Pi tæknina.

 

Gamepop Mini

Gamepop mini

Gamepop Mini er leikjavél sem gerir fólki kleift að spila og streyma leiki af snjallsímum og spjaldtölvun yfir í sjónvarpið. Vélin mun styðja bæði iOS og Android og er væntanleg núna í vetur.

 

 

Höfundur er Helgi Freyr Hafþórsson,
fastur penni á Nörd Norðursins og nemi í fjölmiðlafræði.

 

Deila efni

Tögg: ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑