Fréttir

Birt þann 1. apríl, 2013 | Höfundur: Kristinn Ólafur Smárason

0

Half Life 3 kemur í september 2013

Half Life 3, leikurinn sem hefur valdið hvað mestri eftirvæntingu innan leikjasamfélagsins á seinustu árum, hefur nú loks verið tilkynntur og mun koma út í september á þessu ári.

Þessar fréttir komu óvænt fram síðastliðin laugardag í viðtali AG Entertainment við Gabe Newell, stofnanda og stjórnarformann Valve. Það hefur skapast hálfgerð hefð meðal fréttamiðla að spyrja Newell út í Half Life 3 í öllum viðtölum sem hann gefur kost á, en Newell hefur sjálfur haft orð á því að þessar spurningar hafi löngum farið í taugarnar á honum, enda hefur svarið alltaf verið „Það er ekkert að frétta af Half Life 3.“ Því kom það öllum á óvart þegar Newell var spurður út í leikinn, að hann var ekki einungis með fréttir heldur tilkynnti einnig útgáfudag leiksins sem verður á þessu ári

Newell vildi ekki gefa of mikið upp um leikinn sjálfan, en staðfesti að Half Life 3 mun taka upp þráðinn þar sem Half Life 2: Episode 2 endaði (sem þýðir væntanlega að við getum hætt að bíða eftir Episode 3). Half Life 3 mun notast við nýju Source 2 grafíkvélina sem Valve hefur verið að þróa síðastliðin ár, og mun því vera fyrsti leikurinn sem notast við þá vél. Newell bætti við að hægt verði að nálgast skjáskot úr leiknum á Steam á næstu dögum, en því miður verða spenntir aðdáendur Half Life seríunnar að bíða frekari frétta frá Valve þegar leikurinn verður sýndur í Los Angeles á E3 tölvuleikjahátíðinni í júní.

Uppfært 1. apríl kl. 23:00:

Aprílgabb! Ansi margir sem virðast hafa lent í þessu HÉR í dag 😉

Deila efni

Tögg: , , , , ,


Upplýsingar um höfund:



Comments are closed.

Efst upp ↑