Bækur og blöð

Birt þann 5. nóvember, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Saga eftirlifenda – Heljarþröm er komin út

Saga eftirlifenda: Heljarþröm eftir Emil Hjörvar Petersen er komin út, en um er að ræða annað bindið í stórbrotnu og spennandi frumkvöðlaverki. Í bókinni er sagt frá ásum sem lifðu af Ragnarök og baráttu þeirra við að ná tökum á heiminum á ný.

Í fréttatilkynningu sem útgáfufélagið Nykur sendi frá sér í dag kemur meðal annars fram að:

Í Heljarþröm tvinnast saman goðsagnir, mannkynssaga og samtíminn svo að úr verður þétt og stórskemmtileg atburðarás: Vakning Terrakotta-hersins, váleg Eyðilönd árið 2310, íslenskur tröllaættbálkur, loftskipabardagar og margt fleira. Við mótun nýrrar heimsmyndar vakna upp hugleiðingar um fjölmenningu, trúarbrögð, örlög, orsök og afleiðingu og mátt sagnanna.

Emil Hjörvar Petersen er frumkvöðull á sviði furðusagna hér á landi. Hann leggur ríka áherslu á frásagnarlistina, en Saga eftirlifenda er sannfærandi og frumleg frásögn sem sver sig í ætt við borgarfantasíur, gufupönk og heimsendabókmenntir.

 

Einnig er vakin athygli á því að höfundur bókarinnar hefur vakið athygli erlendis og að Saga eftirlifenda sé lesin samhliða norrænu goðafræðinni í nokkrum íslenskum framhaldsskólum:

Emil Hjörvar Petersen hefur vakið athygli erlendis fyrir Sögu eftirlifenda. Í október síðastliðnum var honum boðið að vera einn af gestahöfundunum á Swecon, sem er hin árlega ráðstefna um fantasíur og vísindaskáldskap í Svíþjóð, en hún var haldin í Uppsölum í ár. Þar las hann upp úr þríleiknum og hélt fyrirlestur um norræna goðafræði í furðusögum. Fullt var út úr dyrum og viðtökurnar vægast sagt góðar.

Helgina þar á undan las Emil upp ljóð á Bókamessunni í Gautaborg, en hann hefur einnig gefið úr ljóðabækurnar Refur (Nykur, 2008) og Gárungagap (Nykur, 2007).

Í mars næstkomandi heldur Emil til Flórída í Bandaríkjunum, á The International Conference on the Fantastic in the Arts, þar sem honum hefur einnig verið boðið að vera einn af gestahöfundunum; hann les upp úr Sögu eftirlifenda og ræðir verkið. Ráðstefnan er haldin í 34. skipti og er sú virtasta í heiminum á sviði furðusagna, en þar koma saman árlega allir helstu fræðimenn og rithöfundar geirans. Heiðursgestur ráðstefnunnar í fyrra var China Miéville, en nú í mars verður það Neil Gaiman.

Ásamt því að fá frábærar viðtökur og mikinn lestur á Íslandi er Saga eftirlifenda nú kennd annað árið í röð í nokkrum framhaldsskólum landsins, þar sem hún er lesin samhliða norrænu goðafræðinni. Nemendur hafa hrifist mjög svo af sögunni og Emil hefur í auknum mæli heimsótt skólana og sagt frá því hvernig hann nýtir efniviðinn í verki sínu.

Í lokin er svo vert að benda á heimasíðu bókanna, www.eftirlifendur.is.

BÞJ/Fréttatilkynning frá útgáfufélaginu Nykur

 

Deila efni

Tögg: , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Comments are closed.

Efst upp ↑