Menning

Birt þann 16. mars, 2012 | Höfundur: Nörd Norðursins

1

Tölvuleikjalistasýning á Smithsonian-safninu

Lengi vel deildu tölvuleikjahönnuðir, spilarar og listamenn um hvort mögulegt væri að líta á tölvuleiki sem listform. Óhætt er að segja að leikir á borð við Ico, Shadow of the Colossus, Flower, EVE Online, JourneyRez og Psychonauts hafa sýnt að tölvuleikir, sem samanstanda af myndlist, grafík, tónlist, hljóðum, hönnun, persónusköpun og sögu, getur auðveldlega talist sem listform.

Tölvuleikjalist hefur ekki fengið mikla athygli í gegnum tíðina og berst við fordóma þar sem sumir vilja líta á hana sem „verri“ eða „óæðri“ list. Nú er svo komið að listasafnið Smithsonian American Art Museum í Washington opnaði sýningu í dag sem ber yfirskriftina; The Art of Video Games, eða list tölvuleikja. Sýningin stendur yfir til 30. september í  Smithsonian American Art Museum, en eftir það mun sýningin flakka á milli safna í Bandaríkjunum fram til janúar 2016.

Sýningin er ein sú fyrsta til að skoða 40 ára þróunarsögu tölvuleikja út frá listrænu sjónarhorni, en sýningin setur sérstakan fókus á sjónrænar brellur og frumlegar leiðir við nýtingu tækninýjunga allt frá Atari VCS til PlayStation 3. Á sýningunni er að finna 80 leiki sem voru valdir með aðstoð almennings úr 240 leikjum sem sýningarstjórinn Chris Melissinos valdi. Þátttaka almennings var mjög góð þar sem yfir 3,7 milljónir atkvæða bárust frá 119,000 manns frá 175 löndum.

Á sýningunni eru leikirnir kynntir með skjáskotum og myndbrotum, en auk þess er hægt að hlusta á viðtöl við hönnuði og listamenn sem og að skoða gamlar leikjatölvur.

Í tengslum við sýninguna verður bókin The Art of Video Games: From Pac-Man to Mass Effect eftir sýningarstjórana Chris Melissinos og Patrick O’Rourke gefin út. Í bókinni er að finna myndir og upplýsingar um leiki frá hinum ýmsu tímum sem tengjast sýningunni, allt frá Space Invaders til BioShock og Uncharted 2. Auk þess eru birt viðtöl í bókinni við þekkta einstaklinga úr tölvuleikjaiðnaðinum á borð við Nolan Bushnell, Warren Spector, Tim Schafer og Robin Hunicke.

The Art of Video Games: From Pac-Man to Mass Effect er fáanleg á Welcome Books ($40) og á Amazon í Bretlandi (£18).

Á sýningar dagskránni eru átta fyrirlestrar, þrír þann 16. mars, aðrir þrír þann 17. mars og tveir þann 4. apríl. Safnið mun hafa efnið aðgengilegt á netinu (webcast) hér, þannig að áhugasamir leikja- og listanördar sem eru fjarri sýningunni geta fylgst með.

 

Dagskrá fyrirlestra:
  • GameFest – Evolution of Video Games – Pioneers (16. mars, 2012)
  • GameFest – Evolution of Video Games – The Future (16. mars, 2012)
  • GameFest – Nolan Bushnell: Video Games in Retrospect (16. mars, 2012)
  • GameFest – A conversation with Hideo Kojima (17. mars, 2012)
  • GameFest – It’s All in the Design with Robin Hunicke (17. mars, 2012)
  • GameFest – Discussion with the stars of The King of Kong: A Fistful of Quarters (17. mars, 2012)
  • Symposium – Video Games: Beyond Play – Video Games at Work (4. maí, 2012)
  • Symposium – Video Games: Beyond Play – Game Change: Society and Culture (4 maí, 2012)

 

Nánari upplýsingar um sýninguna er hægt að finna hér.

 

Heimild: Smithsonian American Art Museum

BÞJ

Deila efni

Tögg: , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



One Response to Tölvuleikjalistasýning á Smithsonian-safninu

Skildu eftir svar

Efst upp ↑