Greinar

Birt þann 19. október, 2011 | Höfundur: Kristinn Ólafur Smárason

2

Hvernig maður breytir NES tölvu til að spila alla leiki

LNBanner

Í seinustu færslu lýsti ég vonbrigðum mínum yfir því að hafa óvart keypt bandaríska NES leiki í Geisladiskabúð Valda. Ég, og sennilega flestir sem eiga NES tölvu á Íslandi, erum með evrópsku útgáfuna sem notast við PAL kerfið, en bandarísku tölvurnar og leikirnir notast við NTSC kerfið. Án þess að ég fari út í of tæknilegar útskýringar á mismuninum á þessum kerfum, þá get ég sagt að þau virka jafnan ekki með hvor öðru. Sem sagt PAL leikir virka ekki á NTSC tölvu og NTSC leikir virka ekki á PAL tölvu. Þegar NTSC leikur er settur í PAL tölvu, sér maður leiknum bregða fyrir á skjánum í eina sekúndu og hverfa svo aftur. Á sama tíma blikkar rauða ljósið framan á NES tölvunni sem gefur til kynna að eitthvað er að. Það sem veldur þessu er lítil örflaga á móðurborði NES tölvunnar sem kallast á ensku; The NES lockout chip. Þessi flaga les leikina sem settir eru í tölvuna til að sjá hvaða kerfi þeir eru gerðir fyrir. Ef kerfi tölvunnar og leiksins eru ekki sambærileg, leyfir flagan ekki tölvunni að spila leikinn.

 

En það er leið til þess að gera þessa flögu óvirka svo að tölvan geti spilað hvaða leiki sem er óháð kerfi. Ég fór þessa leið eftir að ég komst að því að leikirnir sem ég keypti um daginn voru bandarískir, og í þessari færslu ætla ég að kenna þér lesandi góður að gera slíkt hið sama ef þú átt NES tölvu.

Ég ætla þó að taka fram áður en lengra er haldið, að ef þú ætlar að gera þetta við tölvuna þína þá get ég ekki tekið ábyrgð á því ef eitthvað skemmist. Ég bý ekki yfir neinni tæknilegri þekkingu eða hæfni og tókst að gera þetta, þannig að flestir ættu að geta gert þetta sjálfir, en ef þú treystir þér ekki í að gera þetta þá er bara betra að sleppa því eða fá einhvern með smá tæknikunnáttu til að hjálpa þér við þetta. Það fylgja myndir með til útskýringar, og athugið að það er hægt að smella á myndirnar til að sjá stærri útgáfur (það er í raun nauðsynlegt til að sjá þetta nægilega vel). Ég verð samt að afsaka myndagæðin, ég á því miður ekki nægilega góða myndavél til að taka myndir af svona smáum hlutum. En vindum okkur í þetta!

Það sem þarf til að gera breytinguna er eftirfarandi:
1x Langt meðalstórt stjörnuskrúfjárn (ekki verra ef það er segulmagnað).
1x Smáar beittar klippur eða hníf (ég átti ekki nægilega smáar klippur þannig ég notaði dúkahníf).

Svo er ekki verra að hafa góða lýsingu, stöðugt vinnuborð, dollu til að geyma skrúfur og smá þolinmæði.

Fyrsta skref

Takið NES tölvuna ykkar og komið henni fyrir á þægilegum stað. Ef tölvan er rykug eins og mín var, þá er ekki óvitlaust að þurrka aðeins af henni til þess að rykið smitist ekki inn á móðurborðið eða hylkishaldarann meðan þið eruð að vinna í henni.

Annað skref

Snúið tölvunni á hvolf. Losið skrúfurnar sex sem halda tölvukassanum saman. Skrúfurnar eru merktar inn á myndina með rauðum hringjum. Takið síðan tölvukassann í sundur.

Þriðja skref

Nú ættuð þið að sjá innviði tölvunnar. Það sem þarf að gera núna er að losa álhlífina sem umlykur hylkishaldarann. Skrúfurnar sem þarf að losa eru merktar inn á myndina (athugið samt að ég gæti hafa gleymt að merkja einhverjar skrúfur, losið einfaldlega allar skrúfur sem þið sjáið, því á endanum verðið þið búin að losa allar skrúfur í tölvunni hvort sem er). Takið síðan álhlífina af.

 

Fjórða skref (Má sleppa)

Nú ættuð þið að vera búin að finna stöðluðu Nintendo viðhaldsbjölluna. Ef hún er dauð; EKKI ÖRVÆNTA! Hún er sennilega búin að verpa undir hljóðflögunni, og nýjar bjöllur ættu að klekjast þegar straum er hleyft á á ný. Fjarlægið allar dauðar bjöllur og gefið þeim viðeigandi útför.

 

Fimmta skref

Þegar álhlífin er farinn ættuð þið að sjá hylkishaldarann í allri sinni dýrð. Ýtið honum upp og niður nokkrum sinnum til að fullnægja forvitni ykkar um hvernig innviði NES tölvunnar virka. Að því loknu losið allar skrúfur sem halda hylkishaldaranum föstum. Skrúfurnar eru merktar inn á myndina. Athugið að tvær skrúfurnar eru aðeins lengri en allar skrúfurnar hingað til. Leggið á minnið hvar þær fara svo tölvan fari rétt saman aftur. Þegar hylkishaldarinn er laus, þá getið þið rennt honum út. Þetta gæti þarfnast þess að beygja plastið örlítið, ekki hafa áhyggjur, tölvan er sterkbyggðari en þið haldið, þetta á ekki að valda neinum skemmdum.


Sjötta skref

Núna ættuð þið að sjá í bakið á móðurborðinu, en það er í raun á hvolfi innan í tölvunni. Losið allar skrúfur sem þið sjáið að eru eftir, þá ætti móðurborðið að vera laust. Athugið að það eru ennþá tengdir vírar við móðurborðið sem liggja í fjarstýringainnstungurnar og í afltakkanna framan á tölvunni. Ég aftengdi ekki víranna því ég treysti mér ekki til þess, en ef þið gerið það ætti öll meðferð móðurborðsins að vera auðveldari. Lyftið nú móðurborðinu varlega upp. Undir því ætti að vera önnur álhlíf sem ætti að vera laus, fyrir utan nokkra víra sem ganga í gegnum hana. Smokrið hlífinni varlega af og passið að skemma ekki neitt. Þessi partur gæti þarfnast smá þolinmæði og rýmisgreindar.

 

Sjöunda skref

Þegar hlífin er laus frá móðurborðinu leggið þá móðurborðið þannig að það sé stöðugt, og helst þannig að ekkert af pinnunum undir því snerti neitt. Ég stillti því upp á lausa partinum af tölvukassanum.

 

Áttunda skref

Núna ætti móðurborðið að blasa við ykkur. Þetta er NES tölvan. Falleg, ekki satt? Flagan sem þið eruð að leita að er merkt inn á myndina. Á henni ætti að standa: 3195A – 1986 Nintendo – 9134 C. Þetta gæti þó verið breytilegt eftir því hvaða týpu af tölvu þið eruð með, þetta stendur alla veganna á flögunni inni í minni tölvu.

 

Níunda skref

Þegar þið eruð búin að finna flöguna, skoðið hana þá vel. Þetta er tækið sem leyfir ykkur ekki að spila allt sem þið viljið. Á flögunni eru 16 flipar sem ganga inn í móðurborðið, finnið fjórða flipann (merktur inn á myndina). Þennan flipa verðið þið að losa frá móðurborðinu og beygja upp. Ég notaði dúkahníf, en smáar klippur ættu í raun að vera betra. Ef þið eigið lóðbolta þá væri sennilega best að losa flipann frá þannig. Brúni púðinn og bláu tunnurnar við hliðina á flögunni eiga það til að vera fyrir. Það er hægt að beygja þá aðeins frá en farið varlega! Ef þið beygið þá of langt gætu vírarnir brotnað og þá þurfið þið lóðbolta til að laga tölvuna. Ég beygði draslið á minni tölvu alveg þangað til það hallaði aðeins frá flögunni og það slapp hjá mér.

 

Tíunda skref

Núna ætti fjórði flipinn að vera laus frá móðurborðinu. Beygið hann upp og passið að hann snerti ekkert sem gæti gefið honum afl, því það gæti valdið skammhlaupi í tölvunni. Passið einnig að allir vírar og kubbar sem eru ekki einangraðir séu ekki í snertingu við hvorn annan. Ef þið viljið vera örugg þá væri ekki vitlaust að leiða flipann í jarðtengingu, en það er ekki nauðsynlegt (ég gerði það ekki). Núna er óhætt að setja tölvuna saman aftur.

 

Ellefta skref

Þú átt skilið Thule! (eða einhvern annan drykk sem þér finnst góður). Núna ætti NES tölvan þín að geta spilað leiki frá hvaða kerfi sem er, og líka Pirated NES leiki. Þó eru sumir leikir úr öðrum kerfum sem eiga ekki eftir að virka 100% rétt, en eg hef heyrt að alla vegana 90% af leikjum eigi ekki eftir að vera neitt öðruvísi. Sumir leikir gætu þó blikkað aðeins eða ekki litið alveg rétt út, en sem betur fer virka leikirnir þrír sem ég keypti hjá Valda 100% rétt!

Vonandi kemur þetta einhverjum að góðum notum. Ef þú notaðir þetta blogg til að breyta tölvunni þinni þá hefði ég mjög gaman af að heyra af því í athugasemda kerfinu við þessa færslu. En núna er kominn tími til að ég fari og spili eitthvað af þessum amerísku leikjum!

Takk fyrir lesturinn!

Leiðbeiningarnar sem ég notaði við mínar breytingar má finna hér.


(Þessi færsla birtis upphaflega á gamla Leikjanördablogginu 2. október 2011)

Deila efni

Tögg: , , , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:



2 Responses to Hvernig maður breytir NES tölvu til að spila alla leiki

Skildu eftir svar

Efst upp ↑