Íslenskt

Birt þann 6. september, 2011 | Höfundur: Nörd Norðursins

0

Haustráðstefna Skýrr

Hin árlega Haustráðstefna Skýrr verður haldin föstudaginn 9. september á Hilton hótel við Suðurlandsbraut. Ráðstefnan, sem er sú stærsta frá upphafi, snýr að upplýsingatækni og verða 60 fyrirlestrar í 6 mismunandi fyrirlestralínum. Meðal annars mun Hilmar Veigar Pétursson hjá CCP ræða um tengsl tölvuleikjanna EVE Online (PC) og Dust 514 (PS3) og Jeff Weiland hjá Facebook mun fjalla um „The Facebook Process“.  Á kynningarsíðu ráðstefnunnar segir:

 

Föstudaginn 9. september 2011 verður hin árlega Haustráðstefna Skýrr haldin á Hilton-hótelinu við Suðurlandsbraut. Þetta er stærsta ráðstefna Skýrr um upplýsingatækni frá upphafi, enda um 60 fyrirlestrar í boði á 6 mismunandi fyrirlestralínum. Um þriðjungur fyrirlesara eru erlendir sérfræðingar.

Lykilræðu flytur Jeff Wieland hjá Facebook, en hann fjallar um þann starfsanda og vinnuferla („The Facebook Process“) sem lagðir eru til grundvallar hjá þessum samfélagsmiðlarisa. Aðra lykilræðu flytur Hilmar Veigar Pétursson hjá CCP og ræðir þar einstakt samstarfsverkefni CCP og Sony þar sem EVE Online-veröld á PC-tölvum bráðnar saman við skotleikinn Dust 514 fyrir PlayStation3.

Þetta er sautjánda árið í röð, sem ráðstefnan er haldin og í ár er gert ráð fyrir metaðsókn, enda mikil eftirspurn í samfélaginu fyrir gagnlega fræðslu um lausnir upplýsingatækni fyrir atvinnulífið.

Athugið að vegna síaukinnar aðsóknar á Haustráðstefnuna undanfarin ár og mjög takmarkaðs sætarýmis, þá biðjum við hvern og einn ráðstefnugest að skrá sig á þá fyrirlestra sem viðkomandi hefur mestan áhuga á. Þetta gerum við til að fá vísbendingar um fjölda gesta á hvern og einn fyrirlestur og geta raðað í mismunandi stóra sali í kjölfarið.

 

Það kostar 23.300 kr. á ráðstefnuna, en ýmsir hópar (m.a. háskólanemar) fá afslátt af uppgefnu verði.
Nánari upplýsingar um Haustráðstefnuna er að finna á heimasíðu Skýrr.

Deila efni

Tögg: , , , , , , , ,


Upplýsingar um höfund:

Birt af ritstjórn



Skildu eftir svar

Efst upp ↑